 |
 |
 |
 |
 |
|
Saturday, October 28, 2006
Já ! Ég hef fundið notendanafnið og lykilorðið af blogginu mínu.
Hér mun hefjast ný alda af bloggskrifum og hugleiðingum.
Það sem hefur skeð í lífi mínu síðastliðna mánuði er það að ég er kominn í 5. bekk eðlisfræðideildar I í Menntaskólanum í Reykjavík. Ég er hættur á klarinettuna eins og ég hafði óttast , enda hef ég gífurlega lítinn tíma þessa dagana fyrir hluti sem ég myndi alveg örugglega bara gera í hálfkæringi.
Skólinn tekur gífurlega mikinn tíma , bæði um helgar og virka daga en þetta fléttast inn í ákveðna "rútínu" á hverjum einasta degi :
Ég vakna daglega klukkan 6:35 við vekjaraklukkuna mína.
Vakna aftur kl. 7:00 þegar mamma hótar að skilja mig eftir heima þegar hún fer út ef ég fer ekki á fætur.
7:45 er ég á leiðinni niður Laugarveginn í átt að Menntaskólanum í Reykjavík.
Klukkan 8 er ég svo í skólanum. Skóli næstu 6 klst og svo fer ég heim og læri.
Lærdómurinn í 5. bekk tekur gífurlegan tíma miðað við það sem hann gerði í 3. og 4. bekk , stærðfræðin tekur í dag miklu meiri tíma , sömuleiðis eðlis og efnafræðin.
Posted at 12:51 pm by HlynurTT
Sunday, September 25, 2005
Í dag fannst mér ég verða að koma hugsunum mínum aftur á framfæri.
Í kvöld fékk ég þá erfiðu spurningu hvort ég ætti að byrja að æfa á klarinettuna aftur eða einfaldlega hætta.
Ég æfi mig sama sem ekkert og kem alltaf með einhverjar afsakanir til kennarans.
Þetta er ellefta árið mitt á klarinettuna og ég vil síður en svo hætta. Ef ég tek pásu á þessu stigi , þ.e. hætti í hálft ár eða svo á ég aldrei eftir að byrja aftur að spila.
Spurning hvort þetta sé eitthvað rótgróið , ég veit það sjálfur , einstaklingur sem spilar á "klarinett" er endilega ekkert á háum standard. Fordómar og fáfræði láta fólk halda að klarinett sé einhver púkablístra með ljótu hljóði eða einhvað þvíumlíkt.
Gegnum tíðina hef ég barist gegn þeim hugsunahætti hjá fólki sem heldur því fram þegar ég á samskipti við það, barátta mín hefur gengið frekar illa enda telja flestir að Klarinett sé eitthvað sem maður sér bara lélega jazzara spila á.
Hugmyndin um að færa sig á Saxafón hefur einnig sprottið upp en ég tel hana vera fávisku og heimsku. Aðalega útaf því að ég er búinn að æfa í 11 ár og ég ætla ekki að henda því á glæ og byrja aftur frá byrjun á einhverju.
Óbó hefur einnig sprottið upp og ef ég færi á það væri ég mikið lengra kominn á óbó en sax , þar sem óbó og klarinett eru margfalt skildari en klarinett og sax.
Ég ætla að liggja á þessari spurningu í nótt og reyna eftir fremsta megni að taka skynsamlega ákvörðun þegar ég fer til tónlistarkennarans míns á morgun.
Lifið heil.
Posted at 11:29 pm by HlynurTT
Wednesday, June 01, 2005
Hugleiðingar kassaafgreiðslumanns
Ef ég mætti , ef ég gæti myndi ég blogga í vinnunni , enda er stundum svo lítið að gera að maður er að telja pixelana á tölvuskjánum í vinnunni.
Nóg um það , stundum er mikið að gera , stundum ekkert. Í dag heftaði ég saman 200 pappakassa. Margfaldið það með 8 og fáið út heftin sem ég notaði.
Sama dag og prófin voru búinn fór ég í vinnuna , "þjálfun" eins og það heitir víst en þá er manni kennt að afgreiða. Fyrsti dagurinn fór í fokk , ég átti að vinna í 2 tíma , eða vera í þjálfun í 2 tíma en endaði að vera frá 1 til 7 :P.
Allt gekk vel að óskum enda hef ég einstaklega gaman af því að læra á tölvur og kynnast nýjum forritum (nörd?).
Á laugardeginum og sunnudeginum eftir þýskuprófið vann ég hressilega. Gífurlega gaman að taka þessa vinnu fyrst með trukki. Alveg magnað hvað maður lærir á þetta svona gríðarlega hratt þegar maður er undir stressi. Núna eftir viku kann ég "þónokkuð" vel á kerfið og get framkvæmt eftirfarandi aðgerðir :
* Venjuleg sala með korti / Pening / Ávísunum / Innleggsnótum
* Afgreitt pantanir
* Skipt peningum í klink
* Skipt vörum
* Fundið vörur í skrám
* Bent hvar vörur eru í versluninni
* Dregið ályktun á fólki hvort það vilji kvittun eða ekki.
* Borga staðgreitt með afsláttarskírteinum.
* Haldið á vörum fyrir fólk út í bíl /flex
Vinnan er fín , svosum ágæt , nóg að gera þrátt fyrir að stundum er nákvæmlega EKKERT að gera í kannski 1 til 2 tíma.
En jú , eins manns gróði er annars manns tap. Það sem er leiðinlegt við þetta "starf" er að maður verður svo mikill "róbot" lítum á dæmi :
1. "Góðan daginn!"
2. "Daginn..."
1. "2 svona , 3 svona ... fleira ?"
2. "Nei takk..."
1. "Þá er það 1.785 krónur"
2. (réttir kort)
1. "Takk fyrir." (réttir kvittunarmiðan)
1. "Kvitta hér , afrit ?"
2. "Já / nei"
1. " Takk fyrir ! (Góða Helgi)"
2. "Sömuleiðis"
Eins og þið sjáið þá er þetta alltaf sama blessaða "rútínan" sem maður fer í gengum.
Maður man varla eftir seinasta viðskiptavin né þeim sem hafa komið um daginn.
Er þetta ekki svona í öllum vinnum þar sem maður er hluti af gífurlega stórum fjarhóp ?
Þ.e. yfirborðsleg samskipti kúnnans og afgreiðslumannsins , dag eftir dag , viku eftir viku.
ÞAð þarf varla meira en viku til að koma sér inn í þetta kerfi. Einn hængur við þetta er líka að maður verður svo "auðmjúkur" eða réttarasagt "Takk fyrir kærlega" , "Get ég aðstoðað" , "Á ég að finna verðið á þessu fyrir þig?" Blablablabla.... líka eftir vinnu er maður svo einstaklega auðmjúkur og þakklátur fyrir allan fjandan ;S
Posted at 02:23 am by HlynurTT
Sunday, May 15, 2005
Þetta er kannski voðalega skrítið að ræða þetta þar sem þetta virðist vera svo voðalega sjálfsagt fyrir okkur öll.
Ég er trúaður , lít á mig sem kristinn mann. Ég trúi á guð almáttugan , skapara himins og jarðar. Jesú son hans sem dó á krossinum fyrir syndir mannanna og heilagan anda.
Ég fermdi mig ekki í gróðravon heldur vegna þess að ég vildi undirstrika skírnina mína þar sem nafn mitt var skráð.
Það sem ég geri í þessu bloggi er dálítið sem krefst þess að trúa ekki á guð í smá stund og hugsa hvernig lífið væri þá.
Þótt það megi hljóma undarlega urðu með þeim stærstu framförum á hinum ýmsu sviðum , t.d. lækna sviðinu , stærðfræði og heimspeki þegar vísindamenn tók sig til og létu æðri máttarvöld á hilluna í smá stund.
Ef ég man rétt (þið leiðréttið mig) þá var það maður að nafni Hippókrates frá eyjunn i Kos í Litlu Asíu sem grundvallaði læknifræðina , nú ? Hann hugsaði með sér , kannski eru þetta ekki refsingar guðanna eftir allt saman og áleit að sjúkdómar ættu sér náttúrulega orsakir.
Frá upphafi má segja að maðurinn hafi alltaf trúað á eitthvað æðra en hann sjálfan. Sem hann leit á sem æðsta einstaklinginn. Fjölgyðjistrú á rætur sínar að rekja til hirðingja og eingyðingstrú til gyðinga.
Allt er þetta sprottið af einhverju sem fólkið var kannski hrætt við , hirðingjarnir sáu kannski einhverja manneskju í kindunum og fóru að tilbiðja þær. Veðrið breyttist t.d. ef kind var fórnað og svo framvegis.
Manninum er það kannski eðlislægt að trúa á eitthvað æðri en hann sjálfur ?
Einn mannfræðingur kom með þá sönnun að guð væri til væri sú að ekkert hreyfist af sjálfsdáðum. Lauf fýkur einungis ef vindur blæs því , vindurinn fýkur vegna uppgufunar og snúnings jarðar. Þegar þetta er allt rakið , þá kemur það bara til eins .... guðs ?
Eitthvað virðist þetta hafa brenglast núna nýlega , kannski á seinustu 10 - 20 árum , jafnvel lengra.
Jólin eru margfalt meira "sölutrikk" en afmæli Jesú og önnur helgasta hátíð kristinna manna , páskarnir , er jafnvel annað sölutrikk þar sem fólk er nappað til að kaupa hitt og þetta , súkkulaði þetta og hitt.
Fyrr á öldum var farið í krossferðir , flestar enduðu með slátrun og týndu lífi saklausra , eins og flest stríð en þessar "stríðs"ferðir voru gerðar í nafni trúarinnar.
Trúarhiti kristinna manna hefur dofnað eitthvað síðastliðin nokkurhundruð ár en Múslimar virðar halda betur í trúnna , þótt þeir túlki bókina þeirra á mismunandi hátt.
Hvernig væri heimurinn ef fólk tryði ekki á neitt ? Harla skemmtilegur , kannski líka að trúin á eitthvað æðra , til að þóknast hinu æðra knýji fólk áfram til að skapa eitthvða fallegra , fegurra , sniðugra en hefur áður verið ?
Posted at 09:55 pm by HlynurTT
Thursday, April 28, 2005
Seinasti dagurinn
Seinasti skiladagur spurninga og beiðni um hjálp frá kennurum !
Já , það hafa liðið nokkrir dagar síðan ég skrifaði hér seinast.
Bæði útaf annríki og lítilli nennu og spennu. Núna sé ég mér ekki lengur fært að draga þetta á langin og því læt ég hendur standa framm úr ermum og hef skrifin á þessu unaðslega bloggi mínu.
Dagarnir verða sífellt lengri og lengri og nætur tekur að stytta. Ég vaknaði kl. 6 nýlega og varð var við að sólinn er komin upp. Sem er yndislegt. Klukkan er 6 og það er eins og hábjartur dagur.
Þá fer maður að hugsa , afhverju er klukkan ekki færð 1 til 2 tíma aftur til þess að fá sem mest úr deginum ? Vakna kl. 8 (venjulega 7) , skólinn byrjar 9 (venjulega 8) og svo framvegis. Dagurinn myndi nýtast margfalt betur á þennan hátt.
Nóg um það , næsta efni á dagskrá eru svaðalega góðir tónleikar sem ég fór á , föstudaginn 22.apríl 2005. Þetta verður lengi haft í mínum minnum enda voru þessir tónleikar stórfenglegir.
Þarna stóð á stokk einhver al mesti töffari allra tíma , Robert nokkur Plant , söngvari Led Zeppelin ! Goðsagnakenndu þungarokkhljómsveitar sjötugastaáratugarins !
Þá fer ég að spá , HVenær á maður að hætta í bransanum ?
Hvenær á maður að hætta að gera það sem maður gerði með félögum sínum ?
Á maður að halda áfram eftir að hafa sett spor sitt í rokksöguna ? Stofandi og söngvari í þyngstu þungarokksveit allra tíma ?
Er ekki best að hætta á toppnum?
Robert Plant heldur svo sannarlega ekki. Spilar þarna eins og engill , að vísu ekki jafn flott röddin og hún var í Zep en helvíti flott þrátt fyrir það.
Hann spilaði nokkur lög með Zeppelin í bland með lögum úr sólóferlinum sínum.
Í alla staði voru þetta gígantísklega flottir tónleikar , þótt að hann hefði ekki spilað sum lög sem ég hefði gefið vinstra eistað á mér fyrir að fá að heyra. En ég labbaði út með pabba mínum með bros á vör og sönglandi "Whole lotta love....."
Posted at 10:55 pm by HlynurTT
Sunday, April 03, 2005
Hringrás og innbyrðis tengsl allra við allt.
Já , lífið gengur í hring , einn deyr meðan annar fæðist. Stjörnur falla saman og mynda svarthol meðan aðrar stjörnur eru að myndast. Hin eilífa hringsrás lífsins , vatnið gufar upp , verður að skýi og fellur niður aftur hring eftir hring. Segja má að öll sköpunarsaga heimsins sé hringur. Öll þróun hring eftir hring. Lítil pæling sem á rétt á sér enda höfum við rétt til að hugsa og koma hugsunum okkar á blað. Þegar ég á við innbyrðis tengsl allra við allt þá meina ég að velgengi einhvers bitnar á einhverjum , góðverk sem við gerum bitnar á einhverjum og svo framvegis.
Ég var í undarlegri stöðu þegar mér varð þetta ljóst. Ég var að borða brauð og var að glápa á bréfpokan sem fylgdi brauðinu.
Bakarinn bakar brauð og notar í það hveiti sem hann fær frá einum aðila , mjólkina frá öðrum aðila og lyftiduftið frá enn öðrum aðilanum. Pokin var svo keyptur af einhverjum aðila sem keypti einnig hráefnið í efnið sem pokin er gerður úr. Það má líkja við að þegar maður kaupir eitthvað þá er maður að kaupa frá mörgum í einu. Mörgum tugum manns , jafnvel hundruðum manns.
Fólk er farið að verða svona líka. Við fáum eyru , tennur , nýru og allan fjáran frá öðrum einstaklingum og segja má að við erum fleiri en einn einstaklingur. Enda tilheyrði þessi líkamspartur einhverjum öðrum.
Posted at 06:24 pm by HlynurTT
Thursday, March 31, 2005
Já ! Það hef ég gert , að lokinni mikilli umhugsun og þönkum hef ég ákveðið að halda áfram í Tónlistarskólanum í Garðabæ. 12. árið mitt verður því að veruleika og örugglega verða þau margfalt fleiri.
Í langan tíma hef ég hugsað um þetta , niðurstaðan mín var sú að ef ég hætti núna á þessum tímapunkti á ég eftir að sjá eftir því allt mitt líf. Lífið er alveg nógu langt til þess að maður getur lært líka á hljóðfæri. Ég hef einnig ákveðið að hætta í Blásarasveit Tónlistarskóla Garðabæjar sem ég hef verið í hjartnæm 10 ár.
Tónlistin mótar fólk , skringilegt en eitthvað eins sjálfsagt og tónlist þá mótar hún þá sem æfa á hljóðfæri. Hljóðfærið mitt mótaði mig eins og ég er í dag. Ég var nú ekki beint mikið englabarn þegar ég var ungur en eftir að ég byrjaði á klarinett og kynntist þeim aga sem þarf til að spila almennilega lærði ég að haga mér og fylgja ákveðnum reglum. Spila réttan takt , sterkt/veikt , hægt/hratt , stutt/langt og umfram allt vel. Þetta krefst aga , þolinmæði og umfram allt nennu.
Þetta hafði ég ekki þegar ég byrjaði , allra síst þolinmæðina. Eftir 11 ár í tónlistarskólanum þakka ég honum fyrir það að ég hafi komist í Menntaskólann í Reykjavík.
Tónlistarnám hefur mismunandi áhrif á okkur en það sem allir tónlistarmenn læra er að virða aðra tónlist , hverskonar tónlist sem þetta er , um leið og við lærum að meta aðra tónlist lærum við um leið að meta aðra og sjá aðra hlið á málunum.
Sumum finnst arabísk tónlist undarleg í eyrum en tónlistarmaður sem veit hvernig tónauppbyggingin og tónskalarnir eru í arabískri tónlist lærir að hlusta á hana margfalt hraðar en sá sem veit það ekki.
Margar rannsóknir hafa sýnt að tónlistarnám skerpir heilan , á hvaða hátt ? Örvar vinstra heilahvelið að mig minnir , vinstra heilahvelið er einnig miðstöð athygli og annarra lykilhluta í námi.
Posted at 06:31 pm by HlynurTT
Sunday, March 27, 2005
"Vandi fylgir vegsemd hverri"
" Vandi fylgir vegsemd hverri"
Málshátturinn minn þessa páskana. En hvað merkir þetta ? Í hvert skipti sem við verðum heppinn eða okkur gengur vel skapast vandi samhliða velgengninni. Vandi gæti skapast hjá okkur tildæmis hvað maður á að gera við þessa vegsemd. Hvernig maður á að stýra henni og nota hana. Jafnvel kemur upp vandi hjá öðrum þegar manni sjálfum gengur vel. Af þessum orðum má eiginlega lesa úr að "eins manns gróði er annars manns tap" þetta kemur augljóslega í ljós tildæmis hjá Afríkuríkjunum. Afríkuríkin seldu einhverju ríki einhverja vöru , svo nær eitt af þróaðari ríkjunum að útbúa margfalt fleiri samskonar vörur sem Afríkuríkin gerðu , vörur afríkuríkjanna hættust að seljast og vörur iðnríkjanna seldust betur. Afríkin töpuðu á hagnaði iðnríkjanna.
Posted at 11:31 pm by HlynurTT
Tónlistin er allstaðar , umhverfis okkur , inní okkur , allstaðar. Það sem ég sé núna finnst mér vera leiðinlegt. Mér finnst leiðinlegt að fólk hlustar ekki á hina fornu meistara klassísku tónlistarinnar. Mozart , Bach , Beethoven , Tchaskovsky , Handel og alla hina meistarana. Má vera að þetta sé bara rugl í mér eða útaf tónlistarkennslunni sem ég hef fengið gegnum árin , ég æfi á klarinettu og hef gert það síðastliðin 11 ár. Gegnum árin hef ég spilað mikið af klassískum verkum eftir gömlu meistarana. Mér finnst þetta hrein snilld , 15 ára barn sem hlustar á þetta myndi frussa og hlusta frekar á Metallica , Slipknot eða einhvern annan óþverra. En já má vel vera að ég sé bara skrítin. Ég ber virðingu fyrir hinu gamla , því gamla endurspeglar framtíðina. Allar hljómsveitirnar sem eru að spila sækja sína dýpstu uppsprettu til eldri hljómsveita , Metallica t.d. sækir efni í Deep Purple og Led Zeppelin , Led Zeppelin sækir svo hugmyndir sínar jafnvel dýpra , til Elvis.
Kannski eru þetta bara fordómar í mér en mér finnst ekki vera borin nóg virðing fyrir klassísku tónlistinni. Enda er hún guðdómleg í alla staði. Mozart , Beethoven , Tcaskovsky og þeir meistarar eiga að vera spilaðir meira. Ég hvet alla að fara á sinfóníutónleika þar sem eru spiluð klassísk stykki.
Posted at 12:08 am by HlynurTT
Thursday, March 24, 2005
Skrítið en næstum allir eiga einn svona síma þessa dagana. Hvaða manneskja sem er virðist hafa GSM síma á sér þótt það hafi margoft verið sannað að þessir símar eru krabbameinsvaldandi. Símarnir þróast líka meira og meira með hverjum degi. Í dag var kynnt "GSM Bókasafn" en á þessu bókasafni er hægt að niðurhlaða bókum og lesa í símanum sínum lýkt og SMS. Myndavélar , upptökutæki , GPS tæki , næstum hvað sem er er í þessum símum nú til dags. Símarnirnir verða alltaf minni og minni með hverjum deginum og öflugari.
Börn / unglingar nota þessa síma í miklum mæli til að senda svokölluð SMS skilaboð í aðra síma. SKilaboðin geta mest innihaldið 160 stafi og nota krakkar þetta gríðarlega mikið og eru íslendingar með þeim hærri þjóðum í heiminum sem notar SMS skilaboð. Samt virðist öllum standa á sama um þessar rannsóknir sem gerðar eru á GSM símum. Má vera vegna þess að símafyrirtækin kæfa "skaðsamari rannsóknarniðurstöður" eða vegna þess að fólk lýtur á símann sem öryggistæki.
Ef maður festur sig í snjóskafl eða keyrir útaf er alltaf gott að vera með GSM síma í hönd.
Símafyrirtæki moka til sín peninga þessa dagana vegna nýs "markaðs". Fólk getur keypt hringitóna , veggfóður , leiki og fleira fyrir síman sinn sem símafyrirtækið útvegar. Einnig eru SMS leikir orðnir obboðslega vinsælir og getur maður unnið marga vinninga fyrir 129 ,- krónur / sms-ið.
Posted at 12:27 am by HlynurTT
|
|
 |
 |
 |
 |
 |
 |
 |
 |
|
 |
|
 |